Útlendingastofnun greiðir Félagsþjónustu Reykjanesbæjar sex þúsund og fimmhundruð krónur á sólarhring fyrir hvern hælisleitanda. Auk fæðis og húsnæðis fá þeir þrjúþúsund krónur í vasapeninga á viku. Dæmi eru um að menn hafi beðið á gistiheimilinu Fit í allt að þrjú ár.