[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík

Tækni & vísindi | Morgunblaðið | 6.2.2010 | 13:30

„Jólabarnið“ hlýjar ekki Íslendingum

Meðalhiti lofthjúps jarðar hefur hækkað ört undanfarna mánuði og í janúar nálgaðist hann tölur sem sáust árið 1998 þegar áhrifa El Niño gætti sem mest í austanverðu Kyrrahafi. Veðurfræðingur segir aðra þætti hafa meiri áhrif á veðrið hér á landi. Of snemmt er því að spá sérstaklega hlýju ári á Íslandi.

Ágúst H. Bjarnason vekur á bloggi sínu athygli á upplýsingum frá Roy Spencer loftslagsfræðingi um meðalhita lofthjúps jarðar frá 1979. Þar kemur fram að meðalhitinn rauk upp 1998 en það er rakið til hlýnunar sjávar í austurhluta Kyrrahafs, að ströndum Suður-Ameríku, af völdum El Niño. Þetta náttúrufyrirbrigði er kennt við jólabarnið vegna þess að þess verður oftast vart eftir jól. Nokkur ár líða á milli El Niño og er sjórinn í straumunum ekki alltaf jafnhlýr.

Meðalhitinn nú í janúar hækkar með svipuðum hætti og 1998 þannig að gert er ráð fyrir öflugum El Niño í ár.

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni, segir að þegar El Niño nái sér á strik hlýni um 15% af yfirborði jarðar og þess sjáist merki í tölum um meðalhita allrar jarðarinnar.

Aðrir þættir ráða meiru

Hann segir erfitt að greina áhrif El Niño á veðurfar við Norður-Atlantshaf og þar með á Íslandi. Aðrir þættir séu þar meira ráðandi, eins og til dæmis sjávarhiti hér við land og staða og lega helstu veðurkerfa. 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tækni & vísindi — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 9. mars
Mánudaginn 8. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Fimmtudaginn 4. mars
Miðvikudaginn 3. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Mánudaginn 1. mars
Sunnudaginn 28. febrúar
Föstudaginn 26. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar