Áfengið verst fyrir fóstrin

Átta vikna gamalt fóstur.
Átta vikna gamalt fóstur. Reuters

Áfengisneysla verðandi móður er skaðlegri fyrir fóstur í móðurkviði en neysla eiturlyfja. Þetta eru niðurstöður norskrar rannsóknar. Vísindamaður segir að ráðgeri konur barneignir eigi þær að láta áfengisneyslu vera.

Aftenposten greinir í dag frá rannsókninni sem var gerð við  háskólann í Bergen. Þar voru 130 börn og unglingar, 4-14 ára gömul, rannsökuð á árunum 1997-2007. Mæður þeirra misnotuðu áfengi, eiturlyf eða læknadóp á meðgöngu. 

Börnin skiptust í þrjá hópa. 29 þeirra voru greind með heilkenni sem tengist fósturskaða af völdum áfengisneyslu. Þau uxu ekki eðlilega, báru merki taugaskaða og afmyndana í andliti.

35 börn greindust með væg einkenni fósturskaða af völdum áfengisneyslu. 66 barnanna báru greinileg merki misnotkunar móðurinnar á eiturlyfjum eða lækningalyfjum.

Þá sýnir rannsóknin að misnotkun allra tegunda vímuefna dró úr einbeitingu og olli athyglisbresti hjá börnunum. Börn mæðra sem neytt höfðu mest af áfengi á meðgöngunni stóðu sig verst á gáfnaprófum.

Vísindamaðurinn Knut Dalen segir að ráðgeri mæður að eignast börn eigi þær að halda sig frá áfengisneyslu. Þetta geti hljómað sem siðferðispredíkun, en það sé góð leið til að koma í veg fyrir að barnið bíði tjón. Áfengið skemmi frá fyrsta degi meðgöngunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert