Englendingar og Walesverjar líklegastir til að fremja sjálfsmorð á mánudegi

Englendingar og Walesverjar eru líklegastir til að fremja sjálfsmorð á …
Englendingar og Walesverjar eru líklegastir til að fremja sjálfsmorð á mánudegi Morgunblaðið/Golli

Englendingar og Walesverjar eru líklegri til að fremja sjálfsmorð á mánudegi heldur en á öðrum dögum vikunnar, að því er fram kemur í niðurstöðum rannsóknar sem breska hagstofan birti í dag. Kemur fram að þetta séu svipaðar niðurstöður og í öðrum löndum.

Skoðuð voru 34.935 sjálfsmorð í Englandi og Wales á árunum 1993 til 2002 og kom í ljós að 17% þeirra voru framin á mánudögum en einungis tæplega 14% um helgar. Þrátt fyrir það voru flest sjálfsmorð á einum degi framin um helgi, en það var 1. janúar árið 2000. 23 sjálfsmorð voru skráð þann dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert