ÍE markaðssetur erfðapróf vegna sykursýki

mbl.is/Júlíus

Íslensk erfðagreining hefur sett á markað próf sem skorið getur úr um hvork fólk hafi arfgenga áhættuþætti sykusýki af tegund 2, og er þetta fyrsta slíka prófið í heiminum sem sett er á markað. Fréttastofa Reuters segir að ÍE hafi tilkynnt í gær að hvert próf myndi kosta 500 dollara, eða sem svarar 33.000 krónum.

Tegund 2 er algengasta gerð sykursýki og tengist offitu. Tíðnin fer vaxandi í heiminum, að því er talið er vegna lélegs mataræðis og hreyfingarleysis. Með prófinu er hægt að rannsaka hvort erfðaþættir sem auka hættuna á sjúkdómnum séu fyrir hendi og grípa þá til viðeigandi ráðstafana, hefur Reuters eftir Kára Stefánssyni, forstjóra ÍE.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert