Hafa gripið til aðgerða vegna ítrekaðra rána
Ákveðin lyf geymd í tímastilltum öryggisskáp
GRÍPA á til róttækra aðgerða til að auka öryggi starfsmanna Lyfja & heilsu og viðskiptavina vegna rána, m.a. í lyfjabúðum, að undanförnu.
Lyf & heilsa mun gera sérstakan samning við fagaðila um að vera í viðbragðsstöðu ef upp koma áföll, slys, rán eða önnur atvik í apótekum fyrirtækisins. Þá verður
allur öryggisbúnaður apóteka yfirfarinn og nýtt áhættumat gert á hverjum stað.
Að sögn Hjalta Sölvasonar rekstrarstjóra fyrirtækisins voru tildrögin að aðgerðunum hin fjölmörgu bankarán sem framin hafa verið undanfarin ár. "Þau ollu okkur áhyggjum og því fórum við af stað með sérstaka fræðslu vegna vopnaðra rána í síðasta vetur, " segir Hjalti. "Við höfum einnig verið að yfirfara öryggisbúnað og vorum logandi hrædd um að þetta gæti lagst á okkar starfsemi. Síðan verða tvö vopnuð rán í röð. Það þarf lítið út af að bera til að fólk slasist en við þökkum viðbrögðum okkar starfsmanna að ekki fór verr. Það þýðir þó ekki að treysta alfarið á það og þess vegna grípum við nú til aðgerða." Meðal þess sem gert verður er að öll apótek Lyfja & heilsu, þ.e. Lyf & heilsa og Apótekarinn, verða með tímalæstan öryggisskáp sem í verða geymd öll eftirritunarskyld lyf. Einnig verður sérhólf í skápnum fyrir peningaseðla.
Þá verður farið yfir húsnæði allra apóteka Lyfja & heilsu með tilliti til öryggisþátta og gripið til viðeigandi ráðstafana á hverjum stað.
Starfsmenn munu taka einnig þátt í æfingum í sínum apótekum þar sem sett verður á svið röð atvika til að líkja eftir raunverulegu vopnuðu ráni. Þar læra starfsmenn að bregðast rétt við og skipta með sér ábyrgðarverkum í slíkum tilvikum.
Sérfræðingur í öryggismálum mun heimsækja öll apótek fyrirtækisins og ræða um viðbrögð við vopnuðum ránum og svara fyrirspurnum.
Þá verður öryggisgæsla hert og verða apótekin sett í áhættuflokka eftir afgreiðslutíma og staðsetningu.








