Hljótt hefur farið í opinberum fjölmiðlum um stór tímamót í ævi eins helsta frumherja svokallaðrar nútímatónlistar á Íslandi. Langar mig því að gera fátæklega tilraun til að bæta þar um.
Magnús Blöndal Jóhannsson er fæddur á Skálum á Langanesi 8. september árið 1925 og er hann því ný orðinn 70 ára. Er hann sonur hjónanna Jóhanns Kristjánssonar og Þorgerðar Magnúsdóttur.
Meira