sun. 21. mars 2010 19:45
Gosið er á sprungu í Fimmvörðuhálsi og í varúðarskyni þurftu margir Rangæingar að yfirgefa heimili sín.
Björgunaraðgerðir gengið vel

Allar aðgerðir lögreglu, björgunarsveitarmanna og annara vegna eldgossins á Fimmvörðuhálsi hafa gengið mjög vel fyrir sig, að mati Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra. „Í raun hefur þetta gengið alveg eftir því skipulagi sem sett var upp og æft hefur verið eftir á síðustu árum,“ segir Haraldur.

Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, sem formaður almannavarnanefndar í Rangárvallasýslu, hefur stýrt aðgerðum í héraði. Þar þurftu ríflega 500 manns að yfirgefa heimili sín auk þess sem gripið var til margvíslegra annara aðgerða í varúðarskyni. Miðlægt hefur málum verið stjórnað úr samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík. Hún hefur sannað mjög gildi sitt í þessum náttúruhamförum, að mati ríkislögreglustjóra.

Landsmenn búa og starfa þétt við náttúruöflin og eru meðvitaðir um hætturnar. Það ræður ef til vill einhverju um hve allt gekk snuðrulaust fyrir sig, svo sem þegar fólk undir Eyjafjöllum, í Landeyjum og Fljótshlíð þurfti að yfirgefa heimili í skyndingu sín í nótt.“

Tugir lögreglumanna hafa staðið vaktina í aðgerðum vegna eldgossins, bæði á vettvangi og í Skógarhlíð. Þar eru menn til dæmis í góðu samstarfi við jarðvísindamenn sem veitt geta greinargóðar upplýsingar um stöðu mála og huganlega framvindu eldgossins. Þá hafa þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar flogið yfir gosstöðvarnar og hefur tækjabúnaður þeirra reynst ómetanlegur við að afla upplýsinga af gosinu. Nokkrar ferðir hafa verið flognar austur í dag og ein enn er í bígerð síðar í kvöld.

Haraldur segir að í fyrramálið muni hann, ásamt starfsmönnum almannavarnadeildar Ríkislögeglustjóra, funda með Kjartani Þorkelssyni sýslumanni á Hvolsvelli og formanni almannavarnanefndar í héraðinu þar sem næstu skref í málinu verði ákveðin.

til baka