Argentínumaðurinn Lionel Messi er algjörlega óstöðvandi þessa dagana en hann skoraði þrjú marka Barcelona í kvöld þegar liðið sigraði Zaragoza á útivelli, 4:2, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.
Messi kom Barcelona í 3:0 en heimamenn náðu að hleypa spennu í leikinn þegar þeir minnkuðu muninn í eitt mark með því að skora á 85. og 89. mínútu en Svíinn Zlatan Ibrahimovic innsiglaði sigur meistaranna með marki úr vítaspyrnu á 90. mínútu.
Barcelona komst þar með upp að hlið Real Madrid en spænsku risarnir eru efstir og jafnir á toppi deildarinnar með 68 stig og það stefnir í rosalega slag liðanna um meistaratitilinn. Valencia er í þriðja sætinu með 50 stig.