fim. 17. apr. 2014 18:58
Íslensku stelpurnar á verðlaunapallinum í dag.
Brons hjá fimleikalandsliðinu

Íslenska kvennalandsliðið í fimleikum vann í dag til bronsverðlauna í liðakeppni á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum sem haldið er í Halmstad í Svíþjóð.

Íslenska liðið var þannig skipað: Hildur Ólafsdóttir, Norma Dögg Róbertsdóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir, Þórey Kristinsdóttir og Agnes Suto.

Mótinu verður haldið áfram á morgun en þá verður keppt í einstökum áhöldum.

til baka