fös. 18. apr. 2014 08:09
 Wayne Rooney.
Rooney klár í slaginn gegn Everton

Wayne Rooney segist vera klár í slaginn til að leika með Manchester United á sunnudaginn en þá sækir liðið Everton heim í ensku úrvalsdeildinni.

Meiðsli í tá hafa verið að angra framherjann og höfðu þau greinilega áhrif á hann í 3:1-tapi United á móti Bayern München í Meistaradeildinni á dögunum. Rooney segist nú hafa hrist meiðslin af sér og er tilbúinn í slaginn á móti Everton.

Marouane Fellaini er sömuleiðis orðinn heill heilsu og er tilbúinn að mæta sínum gömlu félögum en fróðlegt verður að sjá hvernig stuðningsmenn Everton taka á móti honum og stjóranum David Moyes sem stýrði Everton um árabil.

 

til baka