þri. 22. apr. 2014 09:33
Jürgen Klopp.
Klopp ætlar ekki á Old Trafford

Þjóðverjinn Jürgen Klopp, sem hefur náð athyglisverðum árangri með Borussia Dortmund undanfarin þar, kveðst ekki vera á leiðinni til Englands til að taka við Manchester United en hann hefur verið sterklega orðaður við félagið undanfarið, og enn frekar eftir að David Moyes var sagt upp störfum í morgun.

„Manchester United er frábært félag og ég þekki vel til þeirra stórkostlegu stuðningsmanna. En ég hef helgað mig Borussia Dortmund og fólkinu þar og þau bönd verða ekki rofin," hefur netútgáfa The Guardian eftir Klopp.

til baka