þri. 22. apr. 2014 13:58
David Moyes er hættur hjá Manchester United.
„Kemur mér á óvart“

Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segist vera hissa yfir þeirri ákvörðun að reka David Moyes úr starfi knattspyrnustjóra félagsins.

„Mér þykir þetta leiðinlegt fyrir hönd Davids Moyes en svona er líf þjálfara í fótboltanum. Stundum fer þetta ekki vel og þú ert rekinn,“ sagði Ancelotti við fréttamenn í dag en hann er einn þeirra sem hafa verið orðaðir við stjórastarfið hjá Manchester United.

„Ég er alveg viss um að Moyes fái annað lið og annað tækifæri en mér finnst alltaf leiðinlegt þegar þjálfari er rekinn. Þetta kemur mér á óvart því venjulega er þetta ekki hefð hjá Manchester United.“

 

til baka