þri. 26. ágú. 2014 13:43
Rúrik í leikmeð FC Köbenhavn.
Rúrik í leikmannahópi Köbenhavn

Landsliðsmaðurinn Rúrik Gíslason er í 22 manna leikmannahópi FC Köbenhavn sem hélt til Þýskalands í dag en liðið mætir þýska liðinu Bayer Leverkusen í seinni viðureign liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.

Rúrik hefur glímt við meiðsli í baki síðustu vikurnar, eftir að hafa fengið slæmt högg í fyrsta leik dönsku úrvalsdeildarinnar um miðjan júlí, en hann hóf æfingar á dögunum og verður vonandi klár í slaginn gegn Leverkusen.

Það er á brattann að sækja fyrir FC Köbenhavn því þýska liðið vann fyrri leikinn á Parken, 3:2.

til baka