þri. 26. ágú. 2014 16:37
Íslenska kvennalandsliðið varð Evrópumeistari í hópfimleikum í Árósum 2012.
Tólf af fjórtán orðið Evrópumeistarar

Landsliðsþjálfarar Íslands í hópfimleikum hafa tilkynnt lokahópa landsliða Íslands fyrir Evrópumótið í hópfimleikum sem fram fer í Laugardalshöll 15. - 18. október. Kvennalið Íslands er reynslumikið því 12 af 14 liðsmönnum þess hafa orðið Evrópumeistarar og þrjár þeirra eru tvöfaldir meistarar, þær Glódís Guðgeirsdóttir, Fríða Rún Einarsdóttir og Sif Pálsdóttir.

Tveir nýliðar eru í hópunum, þær Arna Sigurðardóttir og Valdís Ellen Kristjánsdóttir en hennar uppeldisfélag er Höttur á Egilsstöðum og er þetta í fyrsta skipti sem fimleikakona frá Hetti kemst í A landsliðið.

Af þeim 28 sem mynda landsliðshópana tvo, hafa 26 keppt áður á Evrópumóti.

Kvennalandsliðið:

Andrea Sif Pétursdóttir - Stjarnan
Birta Sól Guðbrandsdóttir - Gerpla
Eva Grímsdóttir - Stjarnan
Fríða Rún Einarsdóttir - Gerpla
Glódís Guðgeirsdóttir - Gerpla
Hulda Magnúsdóttir - Stjarnan
Ingunn Jónasdóttir Hlíðberg - Gerpla
Karen Sif Viktorsdóttir - Gerpla
Rakel Nathalie Kristinsdóttir - Gerpla
Sara Margrét Jóhannesdóttir - Stjarnan
Sif Pálsdóttir - Gerpla
Sólveig Bergsdóttir - Gerpla
Valgerður Sigfinnsdóttir - Gerpla
Þórey Ásgeirsdóttir - Stjarnan

Fyrirliði: Sif Pálsdóttir

Þjálfarar: Bjarni Gíslason, Björn Björnsson, Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir og Ásta Þyrí Emilsdóttir

Blandað lið:

Arna Sigurðardóttir - Stjarnan
Edda Sigríður Sigfinnsdóttir - Gerpla
Harpa Guðrún Hreinsdóttir - Stjarnan
Hugrún Hlín Gunnarsdóttir - Selfoss
Katrín Pétursdóttir - Gerpla
Valdis Ellen Kristjánsdóttir - Stjarnan
Þórdís Ólafsdóttir - Stjarnan

Aron Bragason - Selfoss
Benedikt Rúnar Valgeirsson - Gerpla
Birkir Sigurjónsson - Ármann
Daði Snær Pálsson - Ármann
Magnús Óli Sigurðarsson - Gerpla
Sindri Steinn Davíðsson Diego - Ármann
Þorgeir Ívarsson - Gerpla

Fyrirliði: Þórdís Ólafsdóttir

Þjálfarar: Alice Flodin, Daniel Bay og Þórarinn Reynir Valgeirsson

til baka