lau. 20. sept. 2014 16:06
Jóhann Berg Guðmundsson,  og Aron Einar Gunnarsson skoruðu báðir í ensku B-deildinni í dag.
Aron og Jóhann Berg á skotskónum

Íslensku landsliðsmennirnir Aron Einar Gunnarsson og Jóhann Berg Guðmundsson voru báðir á skotskónum fyrir lið sín í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Aron Einar kom Cardiff yfir gegn Derby á útivelli í 1:0 á 51. mínútu. Cardiff jók svo forystuna í 2:0, en leiknum lauk svo með 2:2-jafntefli. Aron Einar var í byrjunarliði Cardiff en var skipt af velli á 72. mínútu.

Jóhann Berg Guðmundsson kom Charlton yfir gegn Rotherham í leik sem lauk 1:1. Jóhann var í byrjunarliði Charlton og spilaði í 80 mínútur, en markið hans kom á 27. mínútu. Kári Árnason lék allan leikinn með Rotherham.

til baka