Real Madríd sló upp markaveislu í heimsókn sinni til Deportivo la Coruna í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag, því Madrídingar hreinlega slátruðu heimamönnum í leik sem lauk 8:2.
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu fyrir Real Madríd og Gareth Bale tvö mörk. James Rodríguez skoraði eitt mark og Mexíkóinn Javier Hernandez sem kom inn á sem varamaður fyrir Bale þegar 13 mínútur voru eftir skoraði tvö mörk á síðustu þremur mínútum leiksins.
Real Madríd hefur nú 6 stig í deildinni að loknum 4 leikjum. Real hefur unnið tvo leiki og tapað tveimur.