mið. 1. okt. 2014 14:49
Uppselt er í stúkuna á leik FH og Stjörnunnar.
Uppselt í stúkuna í Krikanum

Gríðarleg ásókn er í miða á úrslitaleik FH og Stjörnunnar sem mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika á laugardaginn.

„Miðarnir rjúka út eins og heitar lummur og er uppselt í stúkuna með yfirbyggðu þaki,“ er skrifað á twitter síðu FH í dagen stúkan getur rúmað um 2.000 áhorfendur.

Reiknað er með að um og yfir 6.000 manns verði á leiknum í Kaplakrika á laugardaginn sem hefst klukkan 16.

til baka