mið. 1. okt. 2014 16:16
Kyle Walker.
Óvíst hvenær Walker byrjar að spila

Mauricio Pochettino knattspyrnustjóri Tottenham segist ekki vita hvenær bakvörðurinn Kyle Walker getur byrjað að spila að nýju.

Síðasti leikur Walkers með Tottenham var leikur á móti Benfica í Evrópudeildinni sem fram fór í mars en hann hefur glímt við meiðsli í kviði. Af þeim sökum missti hann af HM í Brasilíu í sumar og hann hefur ekkert komið við sögu með Tottenham á núverandi tímabili.

„Á þessu stigi er ómögulegt að segja til um dagsetningu hvenær hann snýr aftur út á völlinn til æfinga og getur byrjað að spila,“ sagði Pochettino.

 

 

til baka