Atli Ævar Ingólfsson skoraði 5 mörk fyrir Guif í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld og var valinn besti maður liðsins eftir leikinn.
Þessi mörk línumannsins dugðu skammt því Guif tapaði fyrir Redbergslid, 28:25. Aron Rafn Eðvarðsson er markvörður Guif en þjálfari þess er Kristján Andrésson.