mið. 22. okt. 2014 10:00
Philipp Lahm og Manuel Neuer afhenta páfanum treyju Bayern München.
Bæjarar hittu páfann

Leikmenn þýsku meistaranna í Bayern München fengu að hitta Francis páfa í Róm í dag.

Bæjarar færðu páfanum gjafir og þeir Philipp Lahm fyrirliði Bayern og markvörðurinn Manuel Neuer færði páfanum meðal annars að gjöf treyju Bayern München. Páfinn átti gott spjall við leikmennina en hann er mikill áhugamaður um fótbolta.

Það var létt yfir liðsmönnum Bæjara í vatikaninu en þeir tóku Rómverja í kennslustund á ólympíuleikvanginum í gærkvöld og lögðu þá, 7:1, í Meistaradeildinni.

til baka