Cristiano Ronaldo verður í eldlínunni með Evrópumeisturum Real Madrid gegn Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni í kvöld.
Hvort sem fólk trúir því eða ekki er staðreyndin sú að Portúgalanum hefur aldrei tekist að skora á Anfield. Líkurnar á því að hann brjóti ísinn í kvöld verða hins vegar að teljast nokkuð góðar því Ronaldo hefur verið í hrikalegu markastöðu undanfarnar vikur og til marks um það hefur hann skorað 15 mörk í fyrstu átta leikjunum með Real Madrid í spænsku deildinni.
Þegar Ronaldo lék með Manchester United spilaði hann fimm leiki á Anfield og honum tókst ekki að finna netmöskvana. Hann náði hins vegar að skora tvívegis á móti Liverpool á Old Trafford.