fim. 23. okt. 2014 20:51
Jarrid Frye skorađi 15 stig fyrir Stjörnuna í fyrri hálfleik.
Stjarnan fór illa međ fúla Grindvíkinga

Stjarnan vann í kvöld öruggan sigur á Grindavík, 103:78, í 3. umferđ Dominos-deildar karla í körfuknattleik. Ţetta var fyrsti sigur Stjörnumanna á leiktíđinni og ţeir hafa ţví tvö stig líkt og Grindavík. Úrslitin réđust í allt ađ ţví fáránlegum 3. leikhluta.

Leikurinn var jafn og spennandi í fyrri hálfleik og fátt sem benti til ţess hruns sem varđ í leik Grindvíkinga í 3. leikhluta. Ţađ varđ hins vegar algjört. Stjörnumenn gengu á lagiđ og hittu vel úr sínum skotum gegn hriplekri vörn Grindvíkinga sem virtist sjálfum fyrirmunađ ađ koma boltanum ofan í körfuna.

Grindvíkingar létu mótlćtiđ og dómara leiksins fara mjög í taugarnar á sér, voru í raun hundfúlir, og sér í lagi Ólafur Ólafsson sem gat međ engu móti haldiđ aftur af sér. Fyrst fékk hann tćknivillu fyrir kjaftbrúk viđ Marvin Valdimarsson og skömmu síđar var hann rekinn úr húsi. Ţá hafđi hann lent illa á bakinu og taldi brotiđ á sér en ekkert var dćmt, og í kjölfariđ sparkađi Ólafur af krafti í auglýsingaskilti og lét ljót orđ falla um dómara leiksins. Ţarna voru úrslitin ţegar ráđin ţar sem Stjarnan hafđi náđ rúmlega 20 stiga forskoti og stađan fyrir lokafjórđunginn var 83:58. Stjarnan vann ţriđja leikhluta sem sagt 30:10.

Í lokafjórđungnum myndađist engin spenna eins og gefur ađ skilja og Stjarnan sigldi sínum fyrsta sigri á leiktíđinni af öryggi í höfn, ţrátt fyrir ađ vera án lykilmannsins Justins Shouse vegna meiđsla.

Til ađ sjá allt sem gerđist í leikjum kvöldsins, smelliđ á KÖRFUBOLTINN Í BEINNI.

Gangur leiksins:: 6:6, 16:11, 20:17, 31:29, 37:34, 43:40, 51:46, 53:48, 61:50, 69:50, 76:52, 83:58, 87:63, 94:68, 98:73, 103:78.

Stjarnan: Jarrid Frye 21/14 fráköst, Marvin Valdimarsson 20/6 fráköst, Dagur Kár Jónsson 17/6 stođsendingar, Sćmundur Valdimarsson 12/5 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 11/5 fráköst, Ágúst Angantýsson 10, Sigurđur Dagur Sturluson 5, Tómas Ţórđur Hilmarsson 4, Brynjar Magnús Friđriksson 3.

Fráköst: 29 í vörn, 10 í sókn.

Grindavík: Oddur Rúnar Kristjánsson 17, Joel Hayden Haywood 13/4 fráköst, Ómar Örn Sćvarsson 13/11 fráköst, Ólafur Ólafsson 13/8 fráköst, Magnús Ţór Gunnarsson 7/4 fráköst, Daníel Guđni Guđmundsson 7, Jens Valgeir Óskarsson 4, Hilmir Kristjánsson 3, Nökkvi Harđarson 1.

Fráköst: 20 í vörn, 13 í sókn.

Dómarar: Leifur S. Gardarsson, Eggert Ţór Ađalsteinsson, Jón Guđmundsson.

Áhorfendur: 183

til baka