fim. 23. okt. 2014 21:24
Halldór: Settum pressu á okkur

Halldór Jóhann Sigfússon og lærisveinar hans í FH fögnuðu sínum þriðja sigri í röð í Olís-deild karla í handknattleik þegar þeir lögðu Stjörnumenn í Krikanum í kvöld.

„Við erum virkilega sáttir við þessa þrjá sigra í röð. Við settum á okkur pressu á að sá þriðji kæmi. Þetta var kannski ekki fallegasti handboltaleikur í heimi en sigur er sigur og ég var ánægður með strákana,“ sagði Halldór Jóhann við mbl.is en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.

til baka