fim. 30. okt. 2014 16:15
Pavel Ermolinskij.
Ermolinskij snýr aftur inn á völlinn

Pavel Ermolinskij leikmaður Íslandsmeistara KR snýr aftur inn á völlinn þegar KR-ingar sækja Keflvíkinga heim í Dominos-deildinni í körfuknattleik í kvöld.

Karfan.is greinir frá því að Ermolinskij  hafi jafnað sig af meiðslum en hann hefur ekki tekið þátt í fyrstu þremur leikjum KR-liðins í deildinni á tímabilinu. KR trónir á toppi Domins-deildarinnar ásamt Haukum en bæði lið hafa unnið alla sína þrjá leiki.

Heil umferð er í deildinni í kvöld klukkan 19.15 en þá mætast:

Keflavík - KR
Grindavík - Þór Þ
Tindastóll - Njarðvík
Haukar - Skallagrímur
Snæfell - Stjarnan
Fjölnir - ÍR

til baka