mið. 17. des. 2014 09:38
Hákon Hrafn Sigurðsson og Birna Björnsdóttir.
Hákon og Birna best í þríþrautinni

Þríþrautarnefnd ÍSÍ hefur útnefnt Hákon Hrafn Sigurðsson og Birnu Björnsdóttur, bæði úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, þríþrautarfólk ársins 2014.

Hákon náði 6. sæti í Kölnarjárnmanninum og 1. sæti áhugamanna í þeirri alþjóðlegu keppni. Hann varð þrefaldur Íslandsmeistari í þríþraut (sprettþraut, ólympísk þraut og hálfur járnmaður) og Íslandsmeistari í tímatökuhjólreiðum (time-trial). Hann varð stigameistari og var ósigraður í þríþraut og tímatökuhjólreiðum á árinu. Hann bætti fjögur íslensk brautarmet á árinu.

Birna varð stigameistari og tvöfaldur Íslandsmeistari í þríþraut (sprettþraut og ólympísk þraut). Hún vann 4 af 5 þríþrautarkeppnum sem hún tók þátt í og sigraði einnig í Heiðmerkurtvíþrautinni. Hún varð einnig stigameistari og Íslandsmeistari í tímatökuhjólreiðum (time-trial).

til baka