sun. 25. jan. 2015 18:21
Patrekur Jóhannesson, landsliđsţjálfari Austurríkis, var afar óhress međ dómgćsluna í leiknum viđ Katar í kvöld í 16-liđa úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik.
Ég sá skömmustusvipinn

„Ţetta er bara leiđinlegt fyrir handboltann,“ sagđi Patrekur Jóhannesson, landsliđsţjálfari Austurríkis, spurđur um dómgćsluna í leik liđs hans viđ heimamenn í Katar í 16-liđa úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik í kvöld. Katar vann međ tveggja marka mun, 29:27, og vann sér sćti í 8-liđa úrslitum mótsins.

Patrekur og félagar eru hinsvegar úr leik eftir hetjulega baráttu en mjög hallađi á ţá í dómgćslunni í leiknum og til ţess vitnar Patrekur međ upphafsorđum sínum.

„Ég sá skömmustusvipinn á einum besta ţjálfara heims, Rivera ţjálfara Katar, í leikslok. Hann ţorđi varla ađ horfa í augun á mér ţegar viđ tókumst í hendur í leikslok. Leikmenn sögđu bara sorrí viđ mig í leikslok. Ţetta er hreinlega fáránlegt. En ég valdi mér ţetta starf og vissi hvernig starfsumhverfiđ er í ţessum bransa,“ sagđi Patrekur ennfremur.

„Ég var ánćgđastur međ sjálfan mig ađ hafa setiđ á strák mínum ţegar mest gekk á enda var ég svo ađ segja á bekknum hjá sálfrćđingnum; Jóhann Ingi Gunnarsson fylgdist međ mér í sjónvarpinu. Mér fannst ég hafa stjórn á mér og hafa áhrif á ţau atriđi sem ég gat haft áhrif á. En vissulega getur mađur ekki leynt vonbrigđum sínum međ ađ viđ erum reknir út af sjö sinnum en Katarmenn ţrisvar, tíu sinnum er dćmdur ruđningur á okkur en einu sinni á Katarliđiđ,“ segir Patrekur um nokkur dćmi úr leiknum í kvöld.

„Ég er stoltur af liđinu mínu í ţessum leik og keppninni í heild. Ţar af leiđir ađ ég ćtla ekki ađ svekkja mig á dómgćslunni nema nćsta klukkutímann. Svo fer mađur ađ horfa fram á veginn á nýjan leik.

Viđ áttum skiliđ ađ fara áfram í átta liđa úrslit heimsmeistarakeppninnar, út frá handboltalegu sjónarmiđi. Viđ getum veriđ stoltir af okkar framgöngu í mótinu en ţađ gefur okkur ekki áframhaldandi keppnisrétt.

Nćst er ađ pakka niđur í töskur og halda heim til Íslands. Framundan er ćfing hjá mér međ Haukana og leikur í Vestmanneyjum 5. febrúar. Ég hlakka til,“ sagđi Patrekur Jóhannesson, landsliđsţjálfari og einnig ţjálfari bikarmeistara Hauka í handknattleik karla, í samtali viđ mbl.is í Lusail-íţróttahöllinni í Doha í Katar í kvöld.

til baka