Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, mun gegna starfi framkvæmdastjóra sambandsins þar til annað verður ákveðið eins og það er orðað í frétt á heimasíðu KSÍ. Þórir Hákonarson, fráfarandi framkvæmdastjóri, sagði starfi sínu lausu á dögunum og hættir 1. mars. Á fyrsta stjórnarfundi KSÍ eftir ársþing var samþykkt að Klara yrði starfandi framkvæmdastjóri á næstunni. Þórir hafði sinnt starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2007. Guðrún Inga Sívertsen verður varaformaður KSÍ.