fös. 27. feb. 2015 12:14
Aron Jóhannsson fagnar sigurmarki sínu fyrir AZ gegn Ajax fyrr í þessum mánuði.
Aron leikfær á ný

Aron Jóhannsson kemur á ný inn í leikmannahóp AZ Alkmaar sem fær Willem II í heimsókn í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld.

Aron lék síðast með gegn Ajax á útivelli 5. febrúar og skoraði þá sigurmarkið, 1:0. Hann meiddist og hefur misst af síðustu þremur leikjum AZ í deildinni.

Hann byrjar væntanlega á bekknum en John van den Brom sagði á fréttamannafundi nú um hádegið að Robert Mühren myndi halda stöðu sinni í byrjunarliðinu. Hann hefur tekið stöðu Arons í síðustu leikjum og skorað í tveimur þeim síðustu.

til baka