Ítalir og Englendingar skildu jafnir, 1:1, í vináttulandsleik sem fram fór á Juventus Stadium í Torinó í kvöld.
Graziano Pelle framherjinn stóri og stæðilegi sem leikur með Southampton kom Ítölum yfir á 29. mínútu en varamaðurinn Andros Townsend jafnaði metin fyrir Englendinga með þrumuskoti á 79. mínútu og þar við sat. Þetta var þriðja landsliðsmark Townsend.
Byrjunarlið Ítalíu: Buffon, Bonucci, Ranocchia, Chiellini, Darmian, Soriano, Valdifiori, Parolo, Florenzi, Eder, Pelle.
Byrjunarlið Englands: Hart, Clyne, Smalling, Jagielka, Gibbs, Jones, Delph, Walcott, Rooney, Henderson, Kane.