þri. 31. mars 2015 20:55
Marouane Fellaini í baráttunni gegn Ísraelsmönnum í kvöld.
Fellaini skaut Belgum á toppinn

Marouane Fellaini leikmaður Manchester United er í markastuði þessa dagana en hann skaut Belgum upp í efsta sæti í B-riðli undankeppni Evrópumóts landsliðs í knattspyrnu í kvöld.

Belgar sóttu Ísraelsmenn heim og höfðu betur, 1:0, með mark Fallaini á 9. mínútu leiksins. Belgar léku manni færri síðustu 25 mínútur leiksins en þeim tókst að halda fengnum hlut.

Belgar eru með 11 stig í efsta sæti, Walesverjar eru einnig með 11 stig og Ísraelsmenn eru í þriðja sætinu með 9 stig.

til baka