þri. 31. mars 2015 21:50
Frá viðureign Portúgals og Grænhöfðaeyja í kvöld.
Portúgal lá fyrir Grænhöfðaeyjum

Portúgalar, án Cristiano Ronaldo, urðu að sætta sig við 2:0 tap á heimavelli gegn Grænhöfðaeyjum í kvöld þegar þjóðirnar áttust við í vináttulandsleik í knattspyrnu.

Odair Fortes og Gege skoruðu fyrir Grænhöfðaeyjar í fyrri hálfleik en Portúgalar léku manni síðasta hálftíma leiksins eftir að Pinto var rekinn af velli.

Portúgal er í 7. sæti á styrkleikalista FIFA en Grænhöfðaeyjar í 38. sætinu. Liðið missti naumlega af sæti á HM í Brasilíu og er sjötta besta lið Afríku í dag, samkvæmt styrkleikalistanum.

 

til baka