mán. 20. apr. 2015 18:00
Jón Margeir á verðlaunapallinm um helgina.
Jón Margeir með annað heimsmet

Sundkappinn úr Fjölni, Jón Margeir Sverrisson, setti nýtt heimsmet í 400 metra skriðsundi þegar hann fór á tímanum 4:13,70 mínútum á opna þýska meistaramótinu í sundi um helgina. Þetta var annað heimsmetið sem Jón setti á mótinu en á fimmtudag setti hann heimsmet í 200 skriðsundi í S14 flokki þroskahamlaðra.

Alls féllu sjö Íslandsmet hjá Jóni þessa helgina og tvö ný heimsmet litu dagsins ljós. 

Thelma B. Björnsdóttir, ÍFR, var einnig á meðal keppenda á mótinu og setti hún fimm ný Íslandsmet en við gerum metunum öllum betri skil á næstunni. 

til baka