mán. 20. apr. 2015 23:06
Guđlaugur Victor Pálsson hreinsar frá marki Helsingborg í leiknum í kvöld.
Victor og félagar taplausir

Guđlaugur Victor Pálsson og samherjar hans í Helsingborg eru áfram taplausir í sćnsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir góđan sigur á Norrköping, 3:1, á heimavelli í kvöld.

Victor lék allan leikinn í vörn Helsingborg og átti góđan leik en Arnór Ingvi Traustason og félagar í Norrköping náđu sér aldrei á strik og áttu ekki möguleika eftir ađ Helsingborg var komiđ í 3:0 í byrjun síđari hálfleiks. Arnór lék allan leikinn.

Helsingborg er međ 8 stig eftir fyrstu fjóra leikina og er eitt fjögurra taplausra liđa í deildinni. Norrköping er í tólfta sćti af sextán liđum međ 4 stig.

Nýliđar Sundsvall unnu góđan útisigur á Örebro, 3:1, og hafa 7 stig eftir fjóra leiki í 8. sćti deildarinnar. Jón Guđni Fjóluson lék allan leikinn í vörn Sundsvall en Rúnar Már Sigurjónsson kom inná á 86. mínútu. Eiđur Aron Sigurbjörnsson og Hjörtur Logi Valgarđsson léku allan tímann í vörn Örebro sem er neđst í deildinni međ ađeins eitt stig.

Nýliđar Hammarby töpuđu sínum fyrsta leik, 3:1 fyrir meisturum Malmö á útivelli. Birkir Már Sćvarsson lék allan leikinn međ  Hammarby sem er međ 7 stig í sjöunda sćtinu.

Malmö er međ 10 stig á toppi deildarinnar, IFK Gautaborg er međ 9 og Helsingborg 8 í ţriđja sćtinu. Elfsborg og AIK eru bćđi taplaus međ 7 stig og mćtast annađ kvöld.

til baka