Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United er sagður hafa augastað á þýska landsliðsmanninum Bastian Schweinsteiger, miðjumanninum öfluga í liði Bayern München.
United hefur ekki lagt í vana sinn að kaupa leikmenn eldri en 27 ára en Schweinsteiger er 31 árs gamall sem hefur verið í stóru hlutverki hjá Bayern mörg undanfarin ár. Hann hefur gríðarlega reynslu, ekki síst í Evrópukeppninni en United er búið að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Schweinsteiger, sem hefur átta sinnum fagnað þýska meistaratitlinum með Bæjurum og einum einum Evrópumeistaratitli, á eitt ár eftir af samningi sínum við þýska meistaraliðið.