Hornamaðurinn knái Sveinn Aron Sveinsson verður áfram í herbúðum Vals á næstu leiktíð í Olís-deildinni í handknattleik.
Sveinn Aron hefur skrifað undir nýjan samning til þriggja ára við félagið.
Sveinn Aron, sem er 22 ára gamall, á að baki 73 deildarleiki fyrir Val og hefur skorað í þeim 203 mörk.