fim. 30. júlí 2015 07:47
Van Gaal.
„Veit ekki hvar hann er“

Louis van Gaal knattspyrnustjóri Manchester United segist ekkert vita hvar Argentínumađurinn Ángel Di Maria sé niđurkominn en forráđamenn Paris SG segja ađ stutt sé í ađ leikmađurinn gangi í rađir félagsins.

Van Gaal var spurđur út í Di Maria eftir ósigur United gegn Paris SG í úrslitaleik Alţjóđa knattspyrnumótsins í Chicago í nótt.

„Ég veit ekki hvar hann hann. Ţiđ getiđ spurt um hann í hverri viku en ég get ekki svarađ spurningunni,“ sagđi Van Gaal en Di Maria fékk lengra frí vegna ţátttöku sinnar međ argentínska landsliđinu í S-Ameríkukeppninni í sumar en til stóđ ađ Argentínumađurinn kćmi samt til móts viđ United-liđiđ í lok Bandaríkjaferđarinnar.

„Manchester United og Paris SG eru tvö stór félög og samningaviđrćđur geta veriđ erfiđar en ţađ er stutt í ađ ţetta mál klárist,“ sagđi Laurent Blanc ţjálfari Paris SG.

 
til baka