fim. 30. júlí 2015 09:00
Elvar Már Friðriksson fer ekki á EM.
Skorið niður í æfingahópi landsliðsins

Búið er að minnka æfingahóp íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik fyrir Evrópumeistaramótið í september, en þrír leikmenn hafa lokið þátttöku sinni í bili og halda í sumarfrí.

Þeir leikmenn sem um ræðir eru þeir Darri Hilmarsson, KR, Emil Barja, Haukum, og
Ólafur Ólafsson, Grindavík/St Clement, Frakklandi.

Áður hafði Elvar Már Friðriksson dregið sig úr hópnum, en hann var að skipta um skóla í Bandaríkjunum. Einnig var endanlega staðfest að Kristófer Acox mun ekki fá leyfi til að taka þátt að þessu sinni vegna skuldbindinga sinna við háskóla sinn í Bandaríkjunum, eins og Morgunblaðið hafði greint frá.

Æfingahópur karla í dag eftir fyrsta niðurskurð
Axel Kárason – Svendborg Rabbits, Danmörk · Framherji · f. 1983 · 192 cm · 37 landsleikir
Brynjar Þór Björnsson - KR · Bakvörður f. 1988 · 192 cm · 42 landsleikir
Finnur Atli Magnússon - KR (á leið til Hauka) · Miðherji · f. 1985 · 208 cm · 19 landsleikir
Haukur Helgi Pálsson – LF Basket, Svíþjóð· Framherji · f. 1992 · 198 cm · 29 landsleikir
Helgi Már Magnússon – KR · Framherji · f. 1982 · 197 cm · 83 landsleikir
Hlynur Bæringsson – Sundsvall Dragons, Svíþjóð · Miðherji · 1982 · 200 cm · 82 landsleikir
Hörður Axel Vilhjálmsson – Mitteldeutscher BC, Þýskaland · Bakvörður · f. 1988 · 190 cm · 35 landsleikir
Jakob Örn Sigurðarson - Boras Basket, Svíþjóð · Bakvörður f. 1982 · 190 cm · 70 landsleikir
Jón Arnór Stefánsson - Unicaja Malaga, Spánn · Bakvörður · f. 1982 · 196 cm · 72 landsleikir
Logi Gunnarsson – Njarðvík · Bakvörður f. 1981 · 192 cm · 108 landsleikir
Martin Hermannsson – LIU University USA / KR · Bakvörður · f. 1994 · 190 cm · 22 landsleikir
Pavel Ermolinskij – KR · Bakvörður · f. 1987 · 202 cm · 44 landsleikir
Ragnar Ágúst Nathanaelsson – Sundsvall Dragons (á leið í Þór Þ.) · Miðherji · f. 1991 · 218 cm · 22 landsleikir
Sigurður Ágúst Þorvaldsson - Snæfell · Framherji · f. 1980 · 202 cm · 56 landsleikir
Sigurður Gunnar Þorsteinsson - Solna Vikings, Svíþjóð · Miðherji · f. 1988 · 204 cm · 44 landsleikir
Ægir Þór Steinarsson - Sundsvall Dragons, Svíþjóð · Bakvörður · f. 1991 · 182 cm · 20 landsleikir

til baka