fim. 30. júlí 2015 09:07
Zlatan Ibrahimovic.
„Mun koma öllum á óvart“

Sænski knattspyrnukappinn Zlatan Ibrahimovic segir að næstu félagaskipti sín muni koma öllum á óvart.

Zlatan hefur verið orðaður við mörg félög en hann segist ánægður hjá Parísarliðinu. Hann segist hins vegar munu yfirgefa félagið á næsta ári þegar samningur hans við það rennur út.

„Hvert ég fer næst mun koma öllum mjög á óvart,“ sagði Zlatan við fréttamenn eftir 2:0-sigur gegn Manchester United í Chicago í nótt þar sem sænski framherjinn skoraði síðara mark Paris SG.

„Ég er mjög ánægður hjá Paris SG þótt þið sjáið það ekki á vellinum. Þetta lítur betur og betur út hjá okkur. Við erum með sterkt lið og getum gert betur en við höfum gert áður.“

 

til baka