sun. 30. ágú. 2015 12:34
Novlene Williams-Mills tryggði Jamaíku heimsmeistaratitilinn í 400 metra boðhlaupi með glæsilegum endaspretti.
Sviptingar í 400 metra boðhlaupinu

Miklar sveiflur urðu í 400 metra boðhlaupi kvenna sem lauk rétt í þessu. Jamaíka hafði góða forystu eftir fyrstu tvo spretti Christine Day og Shericka Jackson.

Allyson Felix hljóp hins vegar Stephenie Ann McPherson uppi og náði forystunni fyrir bandarísku sveitina. Novlene Williams-Mills tryggði hins vegar Jamaíka sigur með góðum endaspretti.

Jamaíka hljóp á tímanum 3:19,13 sem er besti tíma ársins í greininni.

til baka