Rosengård, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttir, gerði í dag 2:2 jafntefli gegn Piteå í 16. umferð efstu deildar í Svíþjóð í dag.
Sara Björk lék allan leikinn í liði Rosengård sem styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar með stiginu sem liðið fékk í þessum leik.
Rosengård er með 35 stig eftir sextán leiki. Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Eskilstuna United eru stigi á eftir en eiga leik til góða.