sun. 30. ágú. 2015 17:22
Aron Jóhannsson með treyju Werder Bremen.
Fyrsta mark Arons í Þýskalandi

Aron Jóhannsson opnaði markareikning sinn fyrir Werder Bremen þegar liðið lagði Borussia Mönchengladbach á heimavelli í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag.

Aron kom Bremen yfir með marki úr vítaspyrnu á 39. mínútu, en Lars Stindl jafnaði metin fyrir M‘gladbach rétt fyrir hálfleikinn. Danski varnarmaðurinn Jannik Vestergaard sem fór á kostum á EM U21 árs landsliða í sumar kom Bremen hins vegar yfir á ný á 53. mínútu og tryggði liðinu 2:1 sigur.

Aron fór af velli hjá Bremen á 70. mínútu, en þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu og hefur liðið fjögur stig eftir þrjár umferðir.

til baka