Það er ekkert sem virðist geta komið í veg fyrir að Paris Saint-Germain fari með sigur af hólmi í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu þennan veturinn eftir 4:1 sigur gegn Troyes í dag. PSG er með 41 stig eftir 15 leiki en Angers, sem er í öðru sæti deildarinnar er með 26 stig.
Leikurinn í kvöld var hefðbundinn hjá PSG þar sem Edinson Cavani reið á vaðið með fyrsta marki leiksins á 29. mínútu, 1:0 fyrir PSG. Zlatan Ibrahimovic skoraði annað mark leiksins Lavyin Kurzawa það þriðja og Jean-Kevin Augustin skoraði fjórða mark PSG. Thomas Ayasse skoraði eina mark Troyes á nítugustu mínútu leiksins.
PSG hefur ekki tapað neinum leik á leiktíðinni og var þjálfari PSG, Laurent Blanc, að vonum ánægður með lið sitt að loknum leik í kvöld.
Leikurinn er fyrsti stórleikurinn sem er spilaður í París eftir hryðjuverkaárásirnar 13. nóvember sl. og var gríðarleg öryggisgæsla við leikvang PSG, Parc des Princes, í kvöld.
Áður en leikurinn hófst birtust stórstjörnurnar hver á eftir annarri: Lionel Messi, Neymar, Wayne Rooney, Cristiano Ronaldo og fleiri á risaskjá í myndskeiði þar sem þeir sögðu allir það sama: „Je Suis Paris“ og báru leikmenn PSG sama slagorð á treyjum sínum í leiknum.
Kolbeinn Sigþórsson, tók ásamt félögum sínum í Nantes á móti korsíska liðinu Bastia en leiknum lauk með markalausu jafntefli. Kolbeinn lék allan tímann.
Staðan í frönsku 1. deildinni og úrslit leikja