Bið verður á því að leikur Þórs og Stjörnunnar hefjist í Dominos-deild karla í körfuknattleik í Þorlákshöfn. Jón Guðmundsson getur ekki dæmt leikinn eins og til stóð og er annar dómari á leiðinni til Þorlákshafnar í hans stað.
Jón varð fyrir því óláni að detta í hálku fyrir utan íþróttahúsið í Þorlákshöfn þegar hann mætti í leikinn samkvæmt tíðindamanni mbl.is. Kennir Jón sér eymsla í baki og var brugðið á það ráð að kalla til Leif Garðarsson sem er lagður af stað til Þorlákshafnar.
Til stóð að leikurinn hæfist klukkan 19:15 en ljóst er að einhver seinkun verður á því.