mán. 27. júní 2016 21:15
Fölskvalaus gleði í Nice

Stemningin var ólýsanleg á Alli­anz Ri­viera-leik­vang­in­um í Nice í Frakklandi þegar dómarinn flautaði til leiksloka í leik Englands og Íslands í kvöld. Allt ætlaði um koll að keyra, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

Gleðin var fölskvalaus og er erfitt að lýsa stemningunni í orðum. Um þrjú þúsund Íslendingar réðu sér einfaldlega ekki fyrir kæti.

Íslendingar sigruðu 2-1 og eru komnir í átta liða úrslit Evrópukeppninnar í knattspyrnu.

til baka