mán. 29. ágú. 2016 07:51
Guðmundur Steinarsson.
Guðmundur hættur með Njarðvík

Guðmundur Steinarsson er hættur sem þjálfari 2. deildarliðs Njarðvíkur í knattspyrnu.

Á vef Njarðvíkinga kemur eftirfarandi fram:

„Stjórn knattspyrnudeildarinnar hefur komist að samkomulagi við Guðmund Steinarsson um að láta af störfum sem þjálfari meistaraflokks félagsins. Vill stjórn deildarinnar nota tækifærið og þakka Guðmundi fyrir gott samstarf undanfarin ár en Guðmundur hefur þjálfað meistaraflokk síðustu þrjú tímabil. Rafn Vilbergsson leikmaður félagsins mun stýra liðinu út keppnistímabilið.“

Njarðvíkingar töpuðu á heimavelli fyrir Sindra á laugardaginn og eru þeir í áttunda sæti deildarinnar.

til baka