Arsenal verður án miðjumannsins Francis Coquelin í næstu leikjum eftir að hann meiddist í hné gegn Chelsea um síðustu helgi.
Óttast var að meiðslin gætu verið mjög alvarleg en skoðun hjá læknum leiddi í ljós að svo væri ekki. Arsene Wenger greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Coquelin yrði aðeins frá keppni í þrjár vikur.
Coquelin meiddist í hné í leik gegn West Bromwich Albion á síðustu leiktíð og var þá frá keppni í meira en tvo mánuði.