sun. 15. jan. 2017 21:11
Ólafur Ólafsson (til hægri) átti góðan leik í kvöld.
Grindvíkingar fyrstir í undanúrslit

Grindavík er fyrsta liðið sem tryggir sér sæti í undanúrslitum Maltbikars karla í körfubolta eftir 74:61 sigur á Þór frá Akureyri fyrir norðan. 

Þrátt fyrir að munurinn á milli liðanna yrði aldrei mjög mikill vann Grindavík alla leikhlutana og leikinn auðvitað í leiðinni. 

Grindavík verður því hluti af svokallaðri Final Four-helgi, þar sem undanúrslitin og úrslitin í Maltbikarnum verða spiluð um sömu helgi í Laugardalshöllinni. 

George Beamon skoraði mest heimamanna, 23 stig, og Darrel Keith Lewis kom þar á eftir með 15. Lewis Clinch skoraði 20 stig fyrir Grindavík og Ólafur Ólafsson og Ómar Örn Sævarsson bættu við 15 stigum hvor. 

til baka