þri. 21. feb. 2017 11:56
Banaslys á Reykjanesbraut

Einn lést og tveir slösuðust í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á Reykjanesbraut, austan við Brunnhóla, í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Var Reykjanesbraut lokað í morgun vegna slyssins. 

Fram kemur að lögreglunni hafi borist tilkynning um slysið klukkan 6.48, en bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt. Talið er að annarri bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming.

Sá sem lést var farþegi í annarri bifreiðinni, en ekki er hægt að greina frá líðan ökumannanna að svo stöddu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.

til baka