Leikmenn Bayern München voru svo sannarlega á skotskónum şegar liğiğ mætti Hamburger SV í 22. umferğ şısku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla á Allianz Arena í dag. Bayern München gjörsigraği Hamburger SV, en lokatölur í leiknum urğu 8:0 Bayern München í vil.
Robert Lewandowski skoraği şrennu fyrir Bayern München, Kingsley Coman skoraği tvö marka liğsins og Arturo Vidal, David Alaba og Arjen Robben skoruğu sitt markiğ hver.
Bayern München trónir á toppi deildarinnar meğ 53 stig eftir şennan sigur, en liğiğ hefur fimm stiga forskot á RB Leipzig sem bar sigurorğ af Köln meğ şremur mörkum gegn einu í dag.
Şá vann Borussia Dortmund 3:0-sigur gegn Freiburg, en Borussia Dortmund situr í şriğja sæti deildarinnar meğ 30 stig. Pierre-Emerick Aubameyang skoraği tvö marka Borussia Dortmund í sigri liğsins í dag.
Robert Lewandowski og Pierre-Emerick Aubameyang eru jafnir í efsta sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar, en şeir hafa hvor um sig skorağ 19 mörk.